MEET US ON FACEBOOK

 more information


EXTRA EXTRA

Free Tour of Reykjavik in Toronto Star
"The smartest thing I did during my recent trip to Reykjavik was line up for the free two-hour walking tour ...."
 more


If you're going to walk around Reykjavik, Iceland, do it with Jonas Thorsteinsson. A guide on the GoEcco walking tour of the city, he knows more than which Viking killed who, where and how. In fact, the only word to describe Thorsteinsson is "prophetic."
 more


FREE Tour of Reykjavik featured on Icelandic National Broadcasting in August 2008.




Meet Goecco on Flickr PHOTO SHARING
reykjavik sightseeing




Upplýsingar um Höfuðborgarsvæðið frá Ferðamálaráði Íslands



Upplýsgar frá www.visiticeland.com

Höfuðborgarsvæðið

Höfuðborgarsvæðið hefur algjöra sérstöðu sem eina borgarsamfélagið á Íslandi með Reykjavík sem þungamiðju. Þar er margt sem heillar og á höfuðborgarsvæðinu er flest að finna fyrir gesti sem hugsast getur, enda borgin á sinn hátt fjölsóttasti ferðamannastaður landsins. Úrval gististaða er mikið og dægradvöl er ríkuleg. Þar má nefna fjölda safna, málverkasýningar, leiksýningar og fjölda skemmtistaða þar sem finna má afþreyingu á öllum árstímum. Fyrir dyrum stendur að byggja ráðstefnu- og tónlistarhús í Reykjavík. Það á enn eftir að auka möguleika á ráðstefnum og ýmsum menningarviðburðum.



Margt að sjá og upplifa
Sérstaða borgarinnar felst m.a. í nálægðinni við óspillta náttúru, útivistarsvæði innan borgarinnar og hreinleika hennar. Hugmyndafræðin um nýtingu jarðvarma til heilsubótar hefur m.a. verið sett í framkvæmd á síðustu árum í Reykjavík í gegnum átakið Reykjavík SPA City. Það er í góðum samhljómi við fallegar gönguleiðir og útivistarsvæði, t.d. í Elliðaárdal og Öskjuhlíð þar sem Perlan undirstrikar með stórfenglegum hætti hve heita vatnið er þessu svæði dýrmætt. Annað dæmi um það er Álafosskvosin í Mosfellsbæ þar sem eitt sinn var vagga ullariðnaðarins á Íslandi en húsin hafa nú skipt um hlutverk og þjóna þörfum listamanna. Um kvosina er falleg gönguleið upp að Reykjum.

Margir garðar eru vel fallnir til útiveru og Húsdýra- og fjölskyldugarðurinn í Laugardal er dæmi um skemmtilega afþreyingu fyrir alla fjölskylduna. Einnig má hefna Hellisgerði sem er blóma- og skemmtigarður í Hafnarfirði. Þaðan er stutt í Hamarinn sem er bústaður álfa af konungakyni en að sögn kunnugra eru hvergi meiri álfabyggðir á Íslandi en einmitt þar. Í Hafnarfirði er mikið haldið upp á þjóðtrú og sögutengda ferðaþjónustu. Álfagönguferðir með leiðsögn og Víkingahátíðin eru góð dæmi um það.


Menning á heimsvísu
Framangreindu til viðbótar er af miklu að taka á sviði menningar og lista og Menningarnótt í Reykjavík er skemmtilegt dæmi um það. Listahátíð í Reykjavík hefur fest sig í sessi sem sérstök hátíð sem samanstendur af því besta sem Íslendingar hafa fram að færa í listum og menningu í bland við hið alþjóðlega, enda hefur fjöldi heimsþekktra listamanna tekið þátt í hátíðinni sem er orðin víðfræg.



Leitaðu að þjónustu og dægradvöl

Til að finna gistingu, aðra þjónustu og dægradvöl á Höfuðborgarsvæðinu þá notarðu leitarvélina hér fyrir neðan kortið vinstra megin á síðunni. Þar er að finna gagnabanka, eða upplýsingabrunn, með upplýsingum um vel á annað þúsund ferðaþjónustuaðila um allt land, ásamt ýmsum hagnýtum upplýsingum fyrir ferðafólk. Má fullyrða að um er að ræða stærsta gagnagrunninn um íslenska ferðaþjónustu sem til er í dag.

Til að fræðast nánar um þá óendanlegu möguleika sem á höfuðborgarsvæðið býður uppá skuluð þið endilega heimsækja þessa ferðavefi:
www.visitreykjavik.is
Hafnarfjörður


Upplýsingamiðstöðvar


Landshlutamiðstöðin

Heimilisfang: Aðalstræti 2
Staður: 101 Reykjavík
Sími: 590-1550
Netfang: info@visitreykjavik.is
Svæði: Höfuðborgarsvæði

Svæðismiðstöðin
Heimilisfang: Strandgata 6
Staður: 220 Hafnarfjörður
Sími: 585-5500
Netfang: info@hafnarfjordur.is
Svæði: Höfuðborgarsvæði

Home - Winter Day Tours - Summer Day Tours - Private Tours - BOOKING - Inquiry Form - (My Reykjavik) - (About Goecco)

Copyright © 2010 Goecco Outdoor adventures iceland. All Rights Reserved. All images on this website are protected by copyright. Images may be reproduced for NON PROFITABLE purposes with APPROPRIATE ACKNOWLEDGEMENT to Goecco Outdoor Adventures.