- Draugaferðirnar
- Ratleikur í Reykjavík
- Amazing Race Þrautakóngur
- Myndir 2008
- Myndbönd 2008
- Landsyn
- Hafðu endilega samband
- Ýmis fróðleikur
- Ókeypis ljósmyndir frá íslandi
- Um Goecco
- Upplýsingar um Höfuðborgarsvæðið
HITTU OKKUR Á FACEBOOK
Frekari upplýsingar
Það lið sem vinnur saman, sigrar saman!
Ratleikur í Reykjavík er ódýr, fræðandi og skemmtilegur máti til að ná liðsanda meðal starfsmanna fyrirtækja. Ratleikinn má tengja viðburðum eins og árshátíðum, jólaballi eða „julefrokost”. Ratleikurinn hentar einnig vel fyrir allar tegundir hópa þar sem fólk vill koma saman og skemmta sér með öðrum hætti.
Við getum sett upp ratleik eða notað einhvern af þeim ratleikjum sem við eigum þegar til. Flestir þeir leikir sem við eigum gerast í eða í kringum 101 Reykjavík.
Markmið með ratleik er að keppa á skemmtilegan og fræðandi máta við samstarfsfélaga og finna svör við spurningum. Á hverri stoppustöð er spurning eða gáta sem þarf að leysa innan fyrirfram ákveðins tímaramma.
Vel skipulagður ratleikur byggir upp liðsanda og heldur öllum gestum uppteknum við að skemmta sér og njóta keppnisandans.
Ratleikur með líkamlegum þrautum í miðbæ Reykjavíkur kostar frá kr. 8.000,-* fyrir
Hvort sem þið viljið hafa ratleik stuttan eða langann, flókinn eða einfaldan, þá er þessi skemmtun frábær leið til að kynnast betur og hlæja saman. Einnig er þetta mjög góð leið til að kynna borgina okkar og vekja furðu fólks á hlutum sem þeir eða þau ekki vissu um.
Ratleikirnir eru einfaldir í uppsetningu og er auðvelt að færa til upphafs eða endapunkt eftir því sem hentar og hve langan tíma gestirnir hafa.
Liðin þurfa að leysa þrautir eða gátur, safna hlutum, taka ljósmyndir (við erum með stafrænar myndavélar), taka þátt í hópefli. Heyra sögur og muna atriði úr sögunum til að geta leyst komandi þrautir.
Liðsmenn taka ljósmyndir sjálfir sem hluti af leiknum, myndirnar er síðan hægt að nota á samkomum eins og árshátíðum.
Verðlaun
Oftast endar leikurinn á verðlauna afhendingu og eru verðlaunin ekki innifalinn í ofanstandandi verðhugmynd.
Reglur í ratleik
Hér má sjá dæmi um reglur í ratleik
Eftirfarandi eru nokkur dæmi um ratleiki í Reykjavík sem við eigum til.
Ratleikur sem byggir á sögu Reykjavíkur
Farið er yfir sögu Reykjavíkur og byggja allar spurnignar og þrautir á sögunni allt frá landnámi til samtíðar.
Persónulegur ratleikur
Þetta er almennur ratleikur í miðbæ Reykjavíkur, hentar einkum vel fyrir minni hópa eða afmæli.
Ratleikur um list og menningu Reykjavíkur
Þessi ratleikur byggir á sögu og menningu Reykjavíkur, þemað er list, menning og trúarbrögð.
Ratleikur um styttur bæjarins. Loksins, loksins nennir einhver að horfa á styttur bæjarins. Þessi ratleikur getur náð frá Laugarnesi, að Hallgrímskirkju og niður í miðbæ.
Ratleikur um Viðey
Viðey er frábær staður fyrir ratleik. Við bjóðum þennan leik í samvinnu við Eldingu Hvalaskoðun. Leikurinn byggir á sögu, menningu og náttúru eyjunnar. Spurningar og svör geta verið varðandi Yoko Ono eða Ágústínusar klaustrið frá um 1200 eða kannski Milljónafélagið og Gjaldþrota þema.
Ratleikur fyrir stóra hópa
Við getum sett upp ratleik fyrir hópa allt að 300 manns samtímis en slíkt þarf að skipuleggja vel og tekur minnst 4-5 tíma.
Ratleikur um náttúru Reykjavíkur.
Þessi ratleikur er til í útgáfu sem tengist trjám og blómum í Reykjavík, önnur útgáfa gerist í Grasagarðinum og enn önnur í Elliðarárdalnum.
FYRIRSPURNIR
Þú getur hringt í Jónas í síma 696 7474 eða sent póst á jonas@goecco.com
Við erum einnig með bókunarform á netinu, smellið hér.
Home - Winter Day Tours - Summer Day Tours - Private Tours - BOOKING - Inquiry Form - (My Reykjavik) - (About Goecco)
Copyright © 2010 Goecco Outdoor adventures iceland. All Rights Reserved. All images on this website are protected by copyright. Images may be reproduced for NON PROFITABLE purposes with APPROPRIATE ACKNOWLEDGEMENT to Goecco Outdoor Adventures.


