- Draugaferðirnar
- Ratleikur í Reykjavík
- Amazing Race Þrautakóngur
- Myndir 2008
- Myndbönd 2008
- Landsyn
- Hafðu endilega samband
- Ýmis fróðleikur
- Ókeypis ljósmyndir frá íslandi
- Um Goecco
- Upplýsingar um Höfuðborgarsvæðið
HITTU OKKUR Á FACEBOOK
Frekari upplýsingar

DRAUGAGÖNGUR Í REYKJAVÍK
Draugagangur í Reykjavík hefur hlotið mjög góðar viðtökur hjá ferðamönnum í sumar og hafa yfir 18.000 manns gengið um götur Reykjavíkur í húmi nætur.
(Ath. sér pakkar fyrir hópa neðst á þessari síðu)
Við hjá Goecco Outdoor Adventures / Haunted Iceland höfum ákveðið að bjóða upp á íslenska útgáfu af Draugagöngunni sem spennandi sérferðir fyrir fyrirtæki, stofnanir og hópa.
Við setjum saman ferðina í tengslum við viðburði hjá fyrirtækjum, hvort sem um er að ræða árshátíð, vinnufundi eða hvataferðir. Við höfum á að skipa einvala liði sérfræðinga með mikla reynslu af skipulagningu og framkvæmd sérferða.
Engar tvær ferðir eru eins hjá okkur því við vitum að hver vinnustaður og hver hópur hefur mismunandi þarfir og markmið. Við bjóðum þjónustu sem er sérsniðin að óskum hvers og eins. Við kappkostum við að gera þína ferð sem ánægjulegasta. Það sem einkennir okkar ferðir er fyrst og fremst persónuleg þjónusta.
Við tökum að okkur allan undirbúning.
Almenn Draugaganga.
Lagt er af stað frá Aðalstræti í miðbæ Reykjavíkur og er sjálf gangan um 90 mínútna löng, hópnum skilað aftur á sama stað, áætlaður tími í ferðinni er ca. 100-120 mínútum seinna.
Innihald ferðarinnar.
Ráðnir voru fjórir miðlar, Sophie frá Kanada, Ritu frá Danmörku og tveir ónefndir íslenskir miðlar.
Markmiðið var að kanna tilvist drauga jafnt sem miðla. Allir miðlarnir fengu sama verkefnið, án þess að vita hver af öðrum eða í hvaða tilgagni ætti að nota upplýsingarnar. Niðurstaðan var vægast sagt "ótrúleg" það virðist sem bæði draugar og miðlar séu í raun til.
Farið er yfir niðurstöðurnar í ferðinni!
Gengið er sem leið liggur um Víkurkirkjugarð í Aðalstræti, síðan er gengið að Dómkirkjunni, stoppað er í Tryggvagarði, við Tjörnina og haldið sem leið liggur upp í Hólavalla Kirkjugarð.
Meðmæli.
Vel hefur gengið að láta hópa hittast hálftíma fyrir brottför á einum af eftirfarandi stöðum, Kaffi Reykjavík, Nýja matsölustaðnum í Geysis Húsinu eða á Hótel Centrum, hópurinn er síðan sóttur þangað og er mikilvægt að klæða sig eftir veðri.
Æskilegt er að gera ráð fyrir 10 mínútum í að gera hópinn tilbúinn og 10-15 mín í að skila hópnum af sér.
Hópastærðir.
Einn leiðsögumaður getur ráðið við allt að 35 manns, sé um stærri hópa að ræða þá höfum við einn leiðsögumann á hverja 30 gesti og höfum nokkrar mínútur á milli hópa.

Stoppustöðvar.
Við getum verið með óvæntar uppákomu við Tjörnina, hvað með uppdekkað borð með heitu skíða-kakó (eða bara kakó sem er ekki skíða) á brúsum sem bíða hópsins.
Greiðsla.
Ganga þarf frá greiðslu fyrir ferðina minnst 24 tímum fyrir brottför hópsins.
Pöntun.
Æskilegt er að panta gögnuferðina með minst viku fyrirvara.
Hægt er að senda póst á jonas@goecco.com eða hringja í síma 696 7474.
Viðbætur.
Hægt er að bæta við gönguna ýmsu uppákomum og gerð eru tilboð í slíkt í hvert og eitt skipti.
Æskilegt er að gangan fari fram í myrkri og hún er á ábyrgð þeirra einstaklinga sem taka þátt, Haunted Iceland tekur ekki ábyrgð á martröðum, hrasi, misstigi, öðrum óhöppum eða almennu þunglyndi gesta.
Sérferðir.
Hægt er að setja upp sérferðir fyrir hópa, þessar ferðir tengjast ratleik um borgina og geta tekið allt að 4 tímum. Einnig getum við bætt við ferðirnar heimsókn í 871 +/-2 safnið eða á Þjóðminjasafn Íslands.
sjá einnin Corporate Entertainment & Teambuilding
Hafið samband.
Haunted Walks of Reykjavik, jonas@goecco.com sími 696 7474.
Ferðin hefst.
Við upplýsingamiðstöð ferðamanna í Aðalstræti 2.

Sérferðir fyrir hópa eru ódýrari en flestum dettur í hug.
Draguaferð, söngur og súpa!
4 tíma ferð í miðbæ Reykjavíkur. Hópurinn hittist fyrir utan Aðalstræti 2, hjá upplýsingamiðstöð ferðamála. 90 mínútna ganga með einum snaps. Þegar hópurinn kemur í Hólavalla kirkjugarð þá bíða okkar einsöngvarar sem syngja Grafskrift og aðra þekkta söngva er tengjast jarðaförum og dauða.
Það er ógleymanleg upplifun að hlusta á Sópran syngja Móðir Mín í Kvíkví í Kirkjugarðinum, röddinn sker inn að beini, og þessi sérstaka saga verður ljóslifandi.
Eftir heimsókn og sögustund í kirkjugarðinum þá gengur leiðsögumaðurinn niður á Sægreifa með hópinn en Sægreifinn er gamall og hlýr matsölustaður sem sérhæfir sig í fiskréttum og er kominn á heimskortið fyrir sína margrómuðu og “Heimsins bestu Humarsúpu” sem svo margir hafa gætt sér á frá hinum ýmsu löndum. Gestirnir taka neð sér vín að vild sem sparar aurinn.
Verð.
ISK. 3.900,- á mann (minnst 30 gestir í hóp), við getum ráðið við stærri hópa og aðra uppsetningu. Ekki hika við að hafa samband ef við getum orðið þér og þínum að liði við skipulagningu á óvissu eða annari skemmtiferð.

Draugagangur, Grótta og blá sumarnótt í Reykjavík!
4-5 tíma ferð í miðbæ Reykjavíkur.
Hópurinn hittist fyrir utan Aðalstræti 2, hjá upplýsingamiðstöð ferðamála. 90 mínútna ganga með einum snaps. Þegar hópurinn kemur í Hólavalla Kirkjugarð þá bíða okkar einsöngvarar sem syngja Grafskrift og aðra þekkta söngva er tengjast jarðaförum og dauða.
Það er óborganleg upplifun að hlusta á Sópran singja Móðir Mín í Kvíkví í Kirkjugarðinum, röddinn sker inn að beini, og þessi sérstaka saga verður ljóslifandi.
Rúta frá Reykjavik Excursions sækir hópinn síðan í Kirkjugarðinn og keyrir sem leið liggur út að Gróttu, þar sem kveiktur er lítill varðeldur. Gítarleikari mætir á staðinn og er nokkuð víst að sumir gestanna nota tímann til að baða sig í sjónum á meðan aðrir syngja með.
Eftir 2-3 tíma skemmtun þá sækir rútan hópinn og keyrir niður í miðbæ.
Verð.
ISK. 4.500,- á mann (minnst 30 gestir í hóp), við getum ráðið við stærri hópa og aðra uppsetningu. Ekki hika við að hafa samband ef við getum orðið þér og þínum að liði við skipulagningu á óvissu eða annari skemmtiferð.
Engin takmörk.
Hægt er að setja upp margar útgáfur af þesari ferð, panta samlokur eða smyrja sjálfur, láta bjórinn bíða kaldann í sjónum, setja upp verkefni og hópefli, og í sjálfu sér má segja að engin takmörk séu fyrir vþí sem hægt er að setja saman í þessu samhengi.

Home - Winter Day Tours - Summer Day Tours - Private Tours - BOOKING - Inquiry Form - (My Reykjavik) - (About Goecco)
Copyright © 2010 Goecco Outdoor adventures iceland. All Rights Reserved. All images on this website are protected by copyright. Images may be reproduced for NON PROFITABLE purposes with APPROPRIATE ACKNOWLEDGEMENT to Goecco Outdoor Adventures.